Skip to main content

Hafliði Sævarsson

Málefni sem mér eru hugleikin:

Heilbrigði lands og lýðs.
Ræktun mannbætandi þátta svo sem líkama og sálar.
Gott aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu.
Sjálfbær uppbygging vistkerfa en eftir síendurteknar árásir undanfarnar aldir er ástand jarðvegs og gróðurs víðast hvar í rúst og svo fjarri því sem eðlilegt getur talist miðað við veðurfar.
Gera mögulega búsetu í sveit án skuldbindinga með því að sveitafélagið leigi í skammtímaleigu út litla og stóra jarðarskika, fyrir fólk sem vill máta sig við sveitalífið, eða fólk sem þegar hefur ákveðið að vera í sveit en er ekki tilbúið í stórar fjárfestingar strax.

15. sæti

Menntun

Ég lauk námi sem búfræðingur frá Hvanneyri 1985 og hef síðan tekið ýmis námskeið tengd búskap og skógrækt. Auk þess er ég rúningskennari, hef tekið nokkur endurmenntunarnámskeið í því fagi.

Starfsferill

Ég ólst upp við landbúnaðarstörf, vann í rörasteypu, afleysingaþjónustu bænda, sjómennsku, er landpóstur, rúningsmaður, smali og bóndi. Vinnan á búinu er fjölbreytt og spannar t.d. vegavinnu, flagvinnu, byggingavinnu og skógrækt svo eitthvað sé talið.

Fjölskylda

Ég er giftur Guðnýju Grétu Eyþórsdóttur, við eigum þrjá syni og fjögur barnabörn.

Áhugamál

Starfið hverju sinni er yfirleitt mitt helsta áhugamál, ásamt starfstengdum íþróttum eins og fjallgöngum, utanvegahlaupum og smalamennskum. Smalamennska á ókunnum slóðum með staðkunnugum er besta kynning á landinu sem maður getur fengið.