Skip to main content

Kristjana Sigurðardóttir

Málefni sem mér eru hugleikin:

Fræðslu- og menntamál.
Uppbygging sveitarfélagsins.
Umhverfi og landbúnaður.
Menning og listir.
Heilbrigðismál.

Menntun

Fædd og uppalin á Akureyri en á rætur að rekja í Fell og Fljótsdal.
Eftir menntaskóla flutti ég suður og kláraði nám í tækniteiknun frá Iðnskólanum í Reykjavík. Búsett í Danmörku í 10 ár. Stundaði þar diplómanám í Multimedia design og síðar BA nám í Design og kulturøkonomi frá Syddansk Universitet í Kolding.

Fjölskylda

Ég er í sambúð með Huga Guttormssyni. Á eina uppkomna dóttur.

Starfsferill

Hef sinnt á ýmsum störfum á Fljótsdalshéraði, t.d. starfað í ferðaþjónustu, verslun, Hússtjórnarskólanum á Hallormsstað og starfa nú í Fellaskóla.
Árið 2018 steig ég mín fyrstu skref sem bæjarfulltrúi fyrir Héraðslistann og var fulltrúi í Bæjarráði og Umhverfis- og framkvæmdanefnd í tvö ár.
Síðustu tvö ár hef ég verið fulltrúi í sveitarstjórn Múlaþings og setið í Fjölskylduráði fyrir Austurlistann.

Áhugamál

Garðrækt, handverk og hönnun, endurvinnsla ýmiskonar, matreiðsla og margt fleira.