Skip to main content

Framboðslisti 2022

g2 webUppstillingarnefnd Austurlistans lagði í gær fram tillögu að framboðslista sem var samþykktur einróma á félagsfundi.

Hildur Þórisdóttir, oddviti Austurlistans mun leiða listann en áhersla var lögð á að efstu fjögur sætin kæmu frá öllum byggðakjörnum eins og gert var fyrir kosningarnar 2020. Þau fjögur sem skipuðu efstu sætin þá skipa þau áfram en þó með þeim breytingum að Kristjana Sigurðardóttir færist í fjórða sæti en Eyþór og Ásdís færast í annað og þriðja sæti.   Lesa meira


Dýrmæt reynsla sveitarstjórnarfulltrúa, sem orðið hefur til frá því að undirbúningur að sameiningu hófst, mun nýtast áfram en það er gott veganesti inn í þau fjölbreyttu og stóru verkefni sem eru framundan. Mikil áhersla verður lögð áfram á sterkar heimastjórnir, aðgengi að staðbundnu háskólanámi og að þær samgöngubætur sem liggja fyrir standist tímaáætlun. Auk þess er brýnt að vinna að umbótum í húsnæðismálum og gera þjónustu sveitarfélagsins í skipulags- og framkvæmdamálum skilvirkari.
Austurlistinn er óháð framboð sem vinnur eftir gildum félagshyggjufólks um menntamál, sterka innviði, greiðar samgöngur og virkt samtal við íbúa. Áhersla verður á að nýta sóknarfærin vel í atvinnu- og menntamálum sem og aðkomu ríkisins að mikilvægri innviðauppbyggingu. Tækifæri
blasa við í samstarfi Múlaþings við UHI (University of the Highlands and Islands), uppbyggingu
Egilsstaðaflugvallar og samgöngubótum sem eru handan við hornið.

Eftirtaldir einstaklingar skipa listann:
1. Hildur Þórisdóttir, mannauðsstjóri og sveitarstjórnarfulltrúi, Seyðisfirði.
2. Eyþór Stefánsson, verkefnastjóri og sveitarstjórnarfulltúi, Borgarfirði.
3. Ásdís Hafrún Benediktsdóttir, bókari og varasveitarstjórnarfulltúi, Djúpavogi.
4. Kristjana Ditta Sigurðardóttir, ritari og sveitarstjórnarfulltrúi, Fljótsdalshéraði.
5. Jóhann Hjalti Þorsteinsson, umsjónarm. heimavist og skrifstofum., Fljótsdalshéraði.
6. Rúnar Gunnarsson, yfirhafnavörður, Seyðisfirði.
7. Tinna Jóhanna Magnusson, miðaldafræðingur og kennari, Borgarfirði.
8. Ævar Orri Eðvaldsson, verkstjóri, Djúpavogi.
9. Baldur Pálsson, Austurlandsgoði, Fljótsdalshéraði
10. Sóley Rún Jónsdóttir, nemi, Seyðisfirði
11. Skúli Heiðar Benediktsson, hreindýraleiðsögumaður, Djúpavogi
12. Snorri Emilsson, lýsingahönnuður, Seyðisfirði.
13. Arna Magnúsdóttir, grunnskólakennari, Seyðisfirði.
14. Rúnar Ingi Hjartarson, leiðsögumaður, Fljótsdalshéraði.
15. Lindsey Lee, augntæknir og verkefnastjóri, Borgarfirði.
16. Ragnhildur Billa Árnadóttir, sjúkraliði, Seyðisfirði.
17. Sigurður Snæbjörn Stefánsson, fornleifafræðingur, Seyðisfirði.
18. Ásdís Heiðdal, leiðbeinandi grunnskóla, Djúpavogi.
19. Jakobína Isold Smáradóttir, háskólanemi, Fljótsdalshéraði.
20. Hafliði Sævarsson, bóndi, Djúpavogi.
21. Aðalsteinn Ásmundsson, smiður, Fljótsdalshéraði.
22. Sigrún Blöndal, grunnskólakennari, Fljótsdalshéraði